
Frystitogarinn Blængur NK landaði í heimahöfn í Neskaupstað í gær að aflokinni 26 daga veiðiferð. Afli skipsins var 704 tonn upp úr sjó og verðmæti hans 570 milljónir króna. Þetta mun vera besti túr Blængs á heimamiðum hvað verðmæti varðar. Aflinn var þannig samansettur: 305 tonn ýsa, 127 tonn karfi, 115 tonn grálúða, 70 tonn ufsi og 61 tonn þorskur. Heimasíðan ræddi við Sigurð Hörð Kristjánsson skipstjóra og spurði hvort menn væru ekki sáttir við túrinn. ”Jú, menn eru ánægðir með þennan túr. Mest var veitt á Selvogsbankanum og á Eldeyjarbankanum en einnig var víðar farið, meðal annars á Melsekk og Hampiðjutorgið. Það var ágæt veiði allan túrinn enda er þetta vertíðartíminn. Veður var breytilegt framan af en gott þegar á leið. Ég er einkar ánægður með hve vel veiddist af ýsunni,” sagði Sigurður Hörður.
Blængur mun halda til veiða á ný í kvöld.