Blængur NK. Ljósm. Smári Geirsson

Frystitogarinn Blængur NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í gær að lokinni afar vel heppnaðri veiðiferð. Aflinn var rúm 700 tonn upp úr sjó og verðmæti hans 681 milljón króna. Veiðiferðin tók 37 daga og var Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri fyrri hluta hennar en Sigurður Hörður Kristjánsson síðari hlutann. Þessi túr Blængs mun vera hans stærsti á Íslandsmiðum og ríkir mikil ánægja með hann.

Bjarni Ólafur sagði að í fyrri hluta túrsins hefði mest verið veitt af grálúðu og ýsu og hefði veiðin þá farið fram í Kartöflugarðinum og á Látragrunni fyrir vestan. Sigurður Hörður upplýsti að í síðari hluta túrsins hefði verið veitt á Hampiðjutorginu og undir lokin á Breiðdalsgrunni og þar um kring. Að veiðum loknum var komið að landi með tæplega 24.000 kassa af gæðafiski.

Að sögn skipstjóranna var veðrið hið þokkalegasta í túrnum og greinilegt að vorið hafði tekið völdin.

Blængur mun halda til veiða á ný á mánudag að lokinni sjómannadagshelgi sem örugglega verður vel heppnuð.