
Aðfaranótt mánudags kom Börkur NK með 1.550 tonn af síld til Neskaupstaðar. Vinnsla á aflanum hófst í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar á mánudagsmorgun og mun henni væntanlega ljúka á morgun. Heimasíðan ræddi við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra og spurði hann um veiðarnar. “Veiðarnar gengu vel. Aflinn fékkst í fjórum holum og var dregið frá einum og upp í fjóra tíma. Afli í holi var frá 300 tonnum og upp í 516 tonn. Veitt var í Seyðisfjarðardýpinu og Norðfjarðardýpinu. Það þarf stundum að leita dálítið að síldinni. Hún hefur haldið sig inni á fjörðum og upp við landið og er nú að ganga frá landinu. Vaðandi síld hefur sést inni á fjörðunum að undanförnu og má nefna að þegar verið var að landa fyrstu síldarförmunum á vertíðinni í Neskaupstað voru vaðandi síldartorfur rétt utan við hafnarmynnið. Staðreyndin er sú að þessi síldarvertíð getur ekki verið mikið þægilegri. Það tekur okkur tvo til þrjá tíma að sigla á miðin og síldin sem fæst er sannkölluð eðalsíld sem hentar örugglega í alla staði vel til vinnslu. Alla vertíðina hefur fengist stór og falleg síld og stærsta síldin sem við höfum séð á þessari vertíð kom í síðasta holinu í þessum túr í Norðfjarðardýpinu. Ég held að allir hljóti að vera afar ánægðir með þessa síldarvertíð hingað til. Þetta er bara veisla,” sagði Hjörvar.