Börkur NK búinn að kasta loðnunótinni. Ljósm. Björn Steinbekk

Börkur NK kom til Neskaupstaðar eftir hádegi í gær með 2.100 tonn af loðnu. Vinnsla hófst þegar úr skipinu og gert er ráð fyrir að hún taki um 40 tíma. Heimasíðan ræddi við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra og bað hann um að segja frá veiðiferðinni. ”Þessi veiðiferð gekk vel í alla staði en við fengum reyndar heldur meiri afla en stefnt var að. Aflinn fékkst í þremur köstum um tíu mílur norðvestur af Heimaey. Í fyrsta kastinu fengust einungis 120 tonn en í hinum báðum fengust um 1.000 tonn. Við vorum að veiða á þriðjudaginn. Fyrst var kastað nokkru fyrir hádegi og við höfðum lokið störfum klukkan hálf sjö um kvöldið. Þetta gekk semsagt afar vel og getur reyndar ekki verið mikið betra. Það er rosalega gaman að fá að veiða í nót og þessi veiðidagur var einkar skemmtilegur. Torfurnar sem við köstuðum á voru alveg í yfirborðinu og við sáum þær greinilega. Maður gleymir ekki svona degi. Það voru fleiri bátar á þessum slóðum og þeir voru einnig að fá góðan afla. Loðnan sem þarna fékkst er virkilega fín. Um það bil 60% aflans er hrygna og hrognaprósentan er 19 – 20%. Nú eru lok Japansfrystingar að nálgast og þá kemur fljótlega að hrognavinnslunni. Sannleikurinn er sá að þessi loðnuvertíð getur ekki verið mikið betri. Þetta er hreint út sagt alveg glimrandi,” sagði Hjörvar.