
Börkur NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í gær með 3.100 tonn af kolmunna. Heimasíðan ræddi við Hjörvar Hjálmarsson skipstjóra og innti hann frétta af veiðunum. “Við vorum að veiða á sömu slóðum og að undanförnu, suðaustur af Færeyjum alveg við bresku lögsögulínuna. Aflinn fékkst í sjö holum og fengust frá 350 – 650 tonn í holi. Það var alllengi dregið og undir lokin var tekið eitt hol á sólarhring. Við munum klára að landa í dag og síðan verður gert klárt fyrir loðnuveiðar og grunnnótin tekin um borð. Það verður virkilega spennandi að hefja veiðar á loðnunni og skemmtilegt að fá loksins að veiða í nót á ný. Við bíðum eftir loðnufréttum frá skipum sem eru út af Hornafirði og á þeim slóðum en veður þar hefur verið óhagstætt. Annars eru menn bjartsýnir og loðnan á hug manna um þessar mundir,” sagði Hjörvar.
Hafþór Eiríksson ,rekstrarstjóri fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar, segir að kolmunninn sé gott hráefni til vinnslu og það gangi vel að vinna hann. Þá upplýsir hann að verksmiðjan hafi tekið á móti um 14.000 tonnum af kolmunna það sem af er ári. Eins hafi verið tekið á móti þeirri loðnu sem flokkast hefur frá við manneldisvinnsluna en það sé sáralítið magn.