Börkur NK að veiðum. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Börkur NK kom til heimahafnar í Neskaupstað í gær með 1.550 tonn af síld. Heimasíðan ræddi við Herbert Jónsson skipstjóra og innti hann frétta af veiðunum. Herbert sagði að túrinn hefði gengið ágætlega. “Við fengum aflann í sex holum og fengust frá 130 tonnum og upp í 360 tonn í holi en dregið var í sex til sjö tíma. Við vorum að veiðum í Reyðarfjarðardýpinu og lentum þaðan reyndar alveg út á Rauða torg. Það er mikil ferð á norsk – íslensku síldinni í austur frá landinu eins og eðlilegt er á þessum tíma. Í þessum túr var norsk – íslensk síld um 60% af aflanum en íslensk sumargotssíld um 40%. Við á Berki erum mjög sáttir við veiðina í túrnum og vertíðin hefur gengið virkilega vel, en nú fer að líða að lokum hennar,” sagði Herbert.

Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar, upplýsti heimasíðuna um að nú væri fiskiðjuverið búið að taka á móti 23.000 tonnum af síld á vertíðinni og eftir væru um 5.000 tonn óveidd. ”Við erum núna að framleiða heilfrysta síld, samflök, roðlaus flök og einnig kviðskorna síld og það má alveg segja að framleiðslan gangi eins og í sögu,” sagði Geir Sigurpáll.