
Síldarvertíð er hafin. Börkur NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 1.200 tonn af gullfallegri síld og hófst vinnsla á henni strax í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan sló á þráðinn til Herberts Jónssonar skipstjóra og spurði hann hvernig þessi fyrsti síldartúr vertíðarinnar hefði gengið. ”Það má alveg segja að hann hafi gengið eins og í sögu. Við fengum aflann í þremur holum í Seyðisfjarðardýpinu. Þegar við lukum veiðum voru 23 mílur í Norðfjarðarhorn þannig að það má alveg segja að þessi síld hafi fengist við bæjardyrnar. Við köstuðum um klukkan tíu í gærmorgun og vorum búnir með þriðja holið rétt eftir miðnætti. Þetta gekk í reynd eins og best verður á kosið. Þetta er 350 – 360 gramma síld og hún er virkilega flott. Það er dálítið af íslenskri sumargotssíld í aflanum en annars er þetta vorgotssíld og hún er alveg átulaus. Þetta hlýtur því að vera úrvalshráefni fyrir vinnsluna. Það svo sannarlega gott að hefja vertíð með þessum hætti og hér um borð eru menn virkilega glaðir,” sagði Herbert.
Oddur Einarsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuverinu, sagði að þar væru menn hoppandi kátir með upphaf síldarvertíðar. Hann tók undir með skipstjóranum og sagði að síldin væri mjög falleg og hentaði vel til vinnslu. ”Hér er líf og fjör eins og alltaf þegar vertíð hefst,” sagði Oddur.
