
Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson
Nú er verið að landa makríl úr Beiti NK í Neskaupstað en afar dauft hefur verið yfir veiðinni síðustu dagana. Heimasíðan sló á þráðinn til Tómasar Kárasonar skipstjóra og spurði frétta. ”Það er fátt góðra frétta þessa dagana. Við erum að landa tæpum 400 tonnum en veiðin hefur verið léleg upp á síðkastið. Við höfum verið að veiðum í íslensku lögsögunni ásamt samstarfsskipum og það hefur verið afar lítið að sjá. Við höfum síðan fengið fréttir úr Smugunni um svipað ástand þar. Menn eru því ekkert sérstaklega hressir en hafa verður í huga að algengt er að makrílveiði detti niður tímabundið á makrílvertíð en síðan rætist úr á ný. Við vonum að þetta verði þannig einnig núna,” sagði Tómas.
Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuvers Síldarvinnslunnar, sagði að vinnslan á makrílnum gengi vel þegar hráefni væri til staðar. ”Vinnslan hefur verið nokkuð samfelld en nú er útlit fyrir að hún verði slitrótt ef veiði eykst ekki. Eins og er ganga veiðarnar ekki nógu vel. Aflinn sem skipin koma með er töluvert síldarblandaður og veruleg áta er í makrílnum. Við vonum að sjálfsögðu að rætist úr veiðinni á næstunni og hráefnið sem við fáum verði gott,” sagði Geir Sigurpáll.