
Barði NK kom til heimahafnar í Neskaupstað síðdegis í gær með 770 tonn af síld. Vinnsla á síldinni hófst síðan í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í gærkvöldi. Heimasíðan ræddi við Theodór Haraldsson skipstjóra sem sagði að þetta hefði verið algjör draumatúr. “Túrinn var rétt rúmur sólarhringur höfn í höfn. Við gátum þó ekki byrjað að veiða strax því þegar við komum út var kaldaskítur. Við fengum aflann norðan í Glettinganesflakinu og það var töluvert að sjá af síld á þessum slóðum. Síldin er virkilega stór og fín og er meðalvigtin 413 grömm. Um 30% af aflanum er íslensk sumargotssíld. Þegar við lukum veiðum voru um 30 mílur til Neskaupstaðar eða tveggja og hálfs til þriggja tíma sigling. Þessar veiðar eru í reynd eins þægilegar fyrir okkur og hægt er að hugsa sér,” sagði Theodór.
Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, segir að hér sé um mjög fallega síld að ræða sem henti vel til vinnslu. ”Við erum að framleiða samflök eða flapsa og síðan er heilfryst. Þetta er afar gott hráefni sem er jafnframt gott að vinna,” sagði Geir Sigurpáll.