Það er verið að landa úr Sighvati GK í Grindavík í dag. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa verið að fiska afar vel við Hvalbakinn að undanförnu. Páll Jónsson landaði fullfermi á Djúpavogi á sunnudaginn og Sighvatur er að landa fullfermi í heimahöfn í Grindavík í dag. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og spurði þá nánari frétta. Benedikt Jónsson á Páli Jónssyni var afar ánægður með veiðiferðina. “Við fengum fullfermi eða 111 tonn í þremur lögnum austan við Hvalbakinn. Þetta kallast dúndurveiði. Aflinn í hverri lögn var 36 tonn, 33 tonn og síðan 42 tonn. Það er ekki hægt að kvarta þegar svona gengur. Aflinn var langmest þorskur og dálítil ýsa með. Fyrir þennan túr lönduðum við í Grindavík og það tók okkur tvo sólarhringa að komast austur. Það var óttalegur barningur, en hann var fljótur að gleymast þegar veiðin hófst,” sagði Benedikt.

Óli Björn Björgvinsson á Sighvati var ekki síður hress með veiðina. ”Við komum til Grindavíkur í nótt með kjaftfullan bát og það verður landað í dag. Um 70% aflans er þorskur en hitt er mest ýsa. Um er að ræða virkilega flottan fisk. Þessi afli fékkst í fjórum lögnum og hálfri að auki. Tvær lagnir voru teknar norðan við Hvalbakinn og tvær og hálf sunnan við. Þorskurinn sem þarna fékkst er úrvalsfiskur og meðalvigtin er 4 – 5 kg. Það er alveg hægt að segja að þarna hafi verið mokveiði og það eina sem truflaði var skítaveður tvo fyrstu dagana á miðunum,” sagði Óli Björn

Páll Jónsson hélt til veiða strax að löndun lokinni á Djúpavogi og mun væntanlega landa í heimahöfn á föstudag. Sighvatur hefur lokið veiðum fyrir jól.