Vestmannaey VE á miðunum. Ljósm. Þorgeir Baldursson

Systurskipin frá Vestmannaeyjum, Bergur VE og Vestmannaey VE, lönduðu bæði enn og aftur fullfermi í Neskaupstað á miðvikudag og í gær. Afli beggja skipa var langmest þorskur, vænn og fallegur fiskur. Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergi, segir að veðrið hafi verið afar leiðinlegt þegar veiðar hófust. “Við hófum veiðarnar norðarlega á Glettinganesflakinu. Þær gengu þokkalega til að byrja með en svo datt veðrið niður og veiðin líka. Þá var haldið á Tangaflak þar sem fékkst ýsa og síðan á Tangaflakstotuna þar sem var góð þorskveiði,” segir Ragnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, lét vel af veiðinni. “Við byrjuðum suður á Hvalbaksgrunni í ýsu en síðan var haldið norður á Tangaflak og endað á Hryggnum í Seyðisfjarðardýpinu. Þetta gekk bara vel og yfir engu að kvarta,” segir Birgir Þór.

Bæði skip héldu til veiða á ný fljótlega að löndun lokinni og má gera ráð fyrir því að þau landi fljótlega á ný eystra.