
Ísfisktogarar Bergs – Hugins, Vestmannaey VE og Bergey VE, hafa að undanförnu verið að veiðum austur og suðaustur af landinu og landað í Neskaupstað og á Djúpavogi. Í gærmorgun lönduðu þeir báðir hins vegar í heimahöfn í Vestmannaeyjum að lokinni stuttri veiðiferð og næst á dagskrá hjá áhöfnunum er að halda upp á sjómannadaginn. Að sögn skipstjóranna er um þessar mundir lögð áhersla á að veiða annað en þorsk.
Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að afli þeirra í túrnum hefði verið um 50 tonn. “Þetta var mest ýsa, steinbítur og koli. Við byrjuðum á Papagrunni og síðan var veitt í Lónsbugt og út af Hornafirði. Þá var haldið á Höfðann og loks endað á Pétursey og Vík. Nú er sjómannadagur framundan og allir í góðu stuði,” sagði Egill Guðni.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði að aflinn hefði verið blandaður. ”Þetta voru um 55 tonn hjá okkur, mest ýsa, steinbítur og koli ásamt dálitlu af þorski. Að þessu sinni hófum við veiðar í Lónsbugtinni og fórum síðan á Skerbleyðuna út af Hornafirði. Við kláruðum loks á Pétursey og Vík. Það var engin sérstök veiði núna, þetta var svona sarg og tiltölulega rólegt en veðrið var gott. Hér um borð eru allir hressir enda sjómannadagurinn framundan,” sagði Jón.
Skipin munu halda til veiða á ný á mánudag.