
Ísfisktogarar Bergs – Hugins í Vestmannaeyjum, Bergey VE og Vestmannaey VE, hafa fiskað vel að undanförnu. Túrarnir hafa verið stuttir, en veðrið hefur verið breytilegt. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og spurði frétta. Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey lét vel af fiskiríinu. “Við lönduðum fullfermi af karfa í Grindavík þann 30. apríl og lönduðum þar aftur á sunnudag og þá var aflinn að mestu karfi en dálítil ýsa með. Í báðum túrum var veitt í Grindavíkurdýpinu þannig að það var stutt að fara. Í fyrri túrnum var haugabræla en fínt veður í þeim seinni,”sagði Jón.
Bergey hélt á ný til veiða í gærkvöldi og það er karfi á dagskránni í túrnum.
Vestmannaey landaði í Grindavík á sunnudaginn og mun landa þar á ný í dag. Í báðum túrum var um fullfermi að ræða. Egill Guðni Guðnason skipstjóri er ánægður með veiðarnar. “Við höfum verið að veiðum á Selvogsbankanum og aflinn hefur mest verið ýsa. Túrarnir hafa verið stuttir eða um það bil tveir dagar. Veðrið hefur verið tiltölulega gott en mér finnst þó vanta lofthitann, hiti vorsins lætur bíða eftir sér,” sagði Egill Guðni.