
Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson
Eyjaskipin, Vestmannaey VE og Bergey VE, halda sínu striki. Vestmannaey landaði í Grindavík á sunnudag og er að landa í Eyjum í dag. Bergey landaði í Eyjum í gær. Heimasíðan innti skipstjórana frétta.
Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að fyrri túrinn hefði verið hreinræktaður karfatúr. ”Við vorum með nánast fullt skip á sunnudaginn og aflinn var nánast eingöngu karfi. Hann fékkst í Víkurálnum. Það var bara nudd þar til í restina og veðrið var hundleiðinlegt. Við fengum helminginn af aflanum á átta tímum í lok túrs þannig að þetta bjargaðist. Eftir löndun var haldið beint til veiða á ný. Þá byrjuðum við á Gordon og síðan var haldið á Pétursey, Síðugrunn og Ingólfshöfða. Loks var svo endað á Víkinni. Þetta var nudd í þrjá sólarhringa og það þurfti að hafa fyrir þessu. Aflinn var rúm 40 tonn og hann var mjög blandaður. Þetta var þorskur, ufsi, ýsa, karfi, langa og blálanga,” sagði Egill Guðni.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði að túrinn hefði verið heldur leiðinlegur. ”Við vorum með um 60 tonn og túrinn tók eina fimm sólarhringa. Aflinn var blandaður; ýsa, þorskur og ufsi. Við vorum fyrir sunnan land og það var gott veður en lítill afli. Staðreyndin er sú að það er sjaldan fiskur á þessum slóðum á þessum árstíma en austurfrá var veður heldur leiðinlegt og því fórum við ekki þangað. Við hófum túrinn á Pétursey og Vík, síðan var reynt á Broadway og á Brekableiðu, þá var haldið á Ingólfshöfðann og þaðan farið á Síðugrunnshorn. Við enduðum síðan aftur á Ingólfshöfðanum. Almennt var veiðin semsagt treg en þó fékkst eitt og eitt þokkalegt hol inn á milli,” sagði Jón.
Bæði skip halda til veiða á ný síðar í dag.