
Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu bæði fullfermi í Grindavík á föstudaginn eftir að hafa verið innan við þrjá sólarhringa að veiðum. Bæði skip voru með blandaðan afla, mest þorsk, ufsa, skarkola og ýsu. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og fékk upplýsingar um veiðina. Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, var ánægður með túrinn. ”Við vorum á Selvogsbankanum allan túrinn. Það var fínt veður framan af en síðan versnaði það heldur betur. Í reyndinni var vitlaust veður á fimmtudaginn og aðfaranótt föstudagsins. Það gekk vel að veiða og ég reikna með að það verði haldið beint á Selvogsbankann aftur,” sagði Egill Guðni.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, var einnig ánægður með fiskiríið. ”Við vorum að veiðum á Planinu vestan við Eyjar og síðan á Selvogsbankanum og ánægjulegt var hve aflinn var blandaður. Túrinn var stuttur og ég reikna með að haldið verði á sömu slóðir á ný að löndun lokinni,” sagði Jón.