Vestmannaey VE. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Ísfisktogararnir Bergey VE og Vestmannaey VE lönduðu báðir í gær að afloknum mjög stuttum túrum. Bergey landaði í Neskaupstað en Vestmannaey í Eyjum. Heimasíðan ræddi stuttlega við skipstjórana og fékk fréttir frá þeim.

Ragnar Waage Pálmason, skipstjóri á Bergey, sagði að aflinn hefði verið 20 tonn og var það mest ýsa og þorskur. “Við vorum að leita að ýsu austur af landinu og það var skítaveður nánast allan tímann. Við prófuðum víða með takmörkuðum árangri. Við vorum á Tangaflakinu, Gerpisflakinu, Skrúðsgrunni og á Gula teppinu og alls staðar var sama sagan. Ýsan lætur bíða svolítið eftir sér núna,” sagði Ragnar Waage.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að veiðin hefði einungis staðið yfir í tvo sólarhringa að þessu sinni. ”Aflinn var 35 tonn, mest ýsa. Það var veitt á Pétursey og Vík. Túrinn á undan var hins vegar afar góður en við lönduðum að honum loknum á mánudaginn. Þá vorum við með fullfermi að lokinni góðri veiði á Ingólfshöfða en eins var veitt á Víkinni og í Breiðamerkurdýpi. Í þeim túr var aflinn mest þorskur og ufsi. Það er alltaf gott þegar ufsinn lætur sjá sig,” sagði Birgir Þór.

Bæði skip héldu til veiða á ný síðdegis í gær.