
Ljósm. Smári Geirsson
Barði NK kom til Neskaupstaðar í morgun með 880 tonn af loðnu og hófst vinnsla strax í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan ræddi við Þorkel Pétursson skipstjóra sem beið spenntur eftir fréttum af nýrri aflaráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Þorkell var bjartsýnn og taldi að verulega yrði bætt við fyrri ráðgjöf. ”Við fengum þennan afla í þremur holum og var dregið í fjóra til sex tíma. Aflinn í holi var frá 180 tonnum og upp í 450 tonn. Veitt var austur og norðaustur af Glettinganesinu í trollhólfi sem þar er. Loðnan var frekar dreifð en við fundum þó ágætar lóðningar inn á milli. Loðnan er á suðurleið og þéttir sig örugglega vel þegar sunnar kemur og þá verður unnt að veiða hana í nót. Verst er að veður hefur ekki verið hagstætt við suðurströndina en austanátt hefur verið ríkjandi. Þetta er fallegasta loðna og það var svo sannarlega gott að finna lyktina af henni. Lyktin fannst inn í brú þegar verið var að dæla og þá var maður sæll og glaður. Það eru um 40 stykki í kílóinu, hrognafyllingin er 7-8% og nánast engin áta í henni. Þetta var karl- og kvenloðna til helminga. Hér um borð eru menn fullir bjartsýni og bíða spenntir eftir ráðgjöfinni frá Hafrannsóknastofnun. Það er full ástæða til að vera bjartsýnn,” sagði Þorkell.
Grænlenska skipið Polar Amaroq var einnig að veiðum á svipuðum slóðum og Barði og var það komið með 950 tonn í morgun eftir fjögur hol.