
Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til Neskaupstaðar í morgun að lokinni veiðiferð. Afli skipsins var 82 tonn, mest þorskur. Heimasíðan ræddi við Einar Ólaf Ágústsson skipstjóra og spurði hvernig túrinn hefði gengið. ”Hann gekk misjafnlega. Aflann fengum við að langmestu leyti á Fætinum en svo var einnig dálítið veitt á Verkamannabankanum. Við reyndum að leita að ýsu með skelfilegum árangri. Mest var leitað á Breiðdalsgrunni og reyndar var víðar farið. Sannleikurinn er sá að það hefur ekki verið nein sérstök veiði á þessum slóðum að undanförnu og ýsuna vantar algjörlega. Hún er bara ekki mætt. Þorskurinn sem fékkst er hins vegar hinn ágætasti og hentar örugglega mjög vel í vinnsluna. Veðrið í túrnum var hreint út sagt alveg fáránlega gott. Það eru engar ýkjur að veðrið er yfirleitt best hérna austurfrá,” sagði Einar Ólafur.
Birtingur mun á ný halda til veiða í kvöld.