Línan dregin á Fjölni GK. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Vísir í Grindavík gerir út krókaaflamarksbátinn Fjölni og er hann minnsta skipið í Síldarvinnsluflotanum. Á Fjölni eru tvær áhafnir og er skipt um áhöfn á hálfsmánaðarfresti. Skipstjórar eru Kristinn Arnberg Kristinsson og Júlíus Magnús Sigurðsson. Heimasíðan ræddi við skipstjórana um nýliðinn febrúarmánuð en í þeim mánuði fór Fjölnir 17 róðra og var aflinn rúmlega 218 tonn. Fram kom hjá skipstjórunum að febrúar hefði verið hörkumánuður og afli mjög góður þegar unnt var að róa vegna veðurs. Kristinn Arnberg sagði að afli hefði jafnvel verið yfir 20 tonn í róðri. “Þetta gekk afar vel. Bestu túrarnir yfir 20 tonn og nokkrir á bilinu 15 – 17 tonn. Fiskurinn sem fékkst var líka stór og fallegur, meðalvigtin líklega 7 – 9 kíló. Það dró úr veiðinni þegar loðnan kom á miðin en þannig er það ávallt. Þetta er á meðal bestu febrúarmánaða sem ég man eftir og það var hægt að róa meira en oft áður þó að síðasta vika mánaðarins félli að mestu niður vegna veðurs,” sagði Kristinn Arnberg.

Júlís Magnús var ekki síður ánægður með febrúarmánuð. ”Þetta er með bestu febrúarmánuðum. Báturinn er gerður út frá Grindavík en veðrið hefur stundum þau áhrif að róið er frá öðrum höfnum. Í febrúar voru til dæmis farnir fimm róðrar frá Grindavík, einnig fimm frá Þorlákshöfn og sjö frá Sandgerði. Aflabrögðin í mánuðinum voru mjög góð og það má alveg tala um mokfiskirí. Það er alltaf góð veiði áður en loðnan kemur á svæðið og það brást svo sannarlega ekki. Þessi flotti febrúarmánuður bættist við janúar sem var afar góður líka. Við Fjölnismenn getum ekki annað en verið ánægðir með byrjun þessa árs,” sagði Júlíus Magnús.