
Í dag hefst fimm vikna sumarstopp hjá Vísi í Grindavík og mun vinnsla ekki hefjast á ný fyrr en 12. ágúst. Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis, segir að um hefðbundið sumarstopp hjá Vísi sé að ræða. ”Það er rík hefð fyrir sumarstoppi hjá okkur og þá stoppar allt, bæði vinnslustöðvarnar og veiðiskipin. Það eru um 150 manns sem starfa hjá Vísi í landi og um 65 sjómenn eru á skipunum. Nú býr um þriðjungur starfsfólkisns í vinnslunni í Grindavík og fer því fólki fjölgandi. Vísir hefur tekið á móti rúmlega tíu þúsund tonnum af fiski til vinnslu það sem af er árinu og er það um 400 tonnum meira en á sama tíma á síðasta ári. Fyrstu þrír mánuðir ársins voru einstaklega góðir bæði hvað varðar veiðar og vinnslu. Þar hjálpaðist margt að og má í því sambandi nefna hagstætt veður, góða veiði, stóran og góðan fisk sem veiddist, vel blandaður afli, hagstæðir markaðir og hátt verð fyrir afurðirnar. Að loknum þremur fyrstu mánuðunum kom tímabil sem var ekki alveg jafn hagstætt en engin ástæða til að kvarta. Á þeim tíma kom fyrir að við værum tæplega með nægan fisk til vinnslu. Að undanförnu hefur verið lögð áhersla á að veiða annað en þorsk og þá einkum keilu. Hafa keiluveiðarnar gengið mjög vel og hægt er að segja að veiðarnar séu á áætlun. Starfsfólk Vísis nýtur sumarstoppsins til fullnustu en tíminn á meðan stoppið varir er nýttur til að sinna ýmsum viðhaldsverkefnum bæði í vinnslunum og skipunum. Allt Vísisfólkið á svo sannarlega gott frí skilið enda búið að standa sig frábærlega jafnt nú í ár sem áður,” sagði Pétur Hafsteinn.