Gott kolmunnahol. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Að undanförnu hefur verið ágæt kolmunnaveiði í færeyskri lögsögu. Grænlenska skipið Polar Amaroq kom með rúmlega 1.000 tonn til Neskaupstaðar sl. föstudag , Börkur NK kom þangað í gær neð fullfermi eða 3.200 tonn og Beitir NK er væntanlegur í dag með 2.900 tonn. Barði NK er á miðunum.

Heimasíðan heyrði hljóðið í skipstjórum Barkar og Beitis. Hálfdan Hálfdanarson, skipstjóri á Berki var ánægður með veiðiferðina. “Við fengum þennan afla austan og suðaustan við Færeyjar en þar er hefðbundin veiðislóð á þessum árstíma. Aflinn fékkst í sjö holum og voru frá 300 og upp í 650 tonn í holi. Dregið var í 10 til 20 tíma. Þetta er ágætis veiði og fiskurinn sem fékkst er stór og fallegur,” sagði Hálfdan.

Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti, var einnig sáttur við veiðiferðina. “Þetta gekk býsna vel og veður var ágætt allan tímann. Við fengum aflann í fimm holum og var dregið í 12 til 18 tíma í hverju þeirra. Það fengust frá 400 tonnum og upp í 700 tonn í holi. Þarna voru nokkur íslensk skip að veiðum ásamt tveimur færeyskum og tveimur rússneskum. Ég held að sé ekki hægt annað en að vera ánægður með þennan túr,” sagði Tómas.

Hafþór Eiríksson, verksmiðjustjóri fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar, var ánægður með hráefnið sem skipin hafa komið með til vinnslu. ”Þetta er fínasta hráefni. Fiskurinn er þokkalega feitur og hentar vel til vinnslu. Það verður klárað að landa úr Berki í dag og landað verður úr Beiti á morgun,” sagði Hafþór.