
Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson
Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur tekið á móti 3.300 tonnum af loðnu á nýhafinni vertíð og hefur vinnsla gengið vel. Það var grænlenska skipið Polar Amaroq sem kom með fyrstu loðnuna þann 20. janúar og síðan hafa Barði NK og Polar Ammassak komið með góða farma auk þess sem Polar Amaroq kom öðru sinni. Heimasíðan ræddi stuttlega við Geir Sigurpál Hlöðversson rekstrarstjóra fiskiðjuversins og spurði hvernig vinnslan hefði gengið. „Hún hefur gengið vel. Loðnan er hin ágætasta og það það hefur lítið flokkast frá. Það sem flokkast frá fer til vinnslu á mjöli og lýsi. Öll loðnan sem borist hefur til okkar hingað til hefur verið veidd í flotvörpu en nú eru skipin að taka nætur og brátt mun nótaveiðin hefjast upp á grunnum fyrir sunnan landið. Við lukum við að vinna afla úr Polar Ammassak í gærkvöldi og nú er verið að þrífa fiskiðjuverið hátt og lágt fyrir næstu törn. Hér eru menn bjartsýnir og vonandi mun veður ekki trufla nótaveiðarnar suður af landinu,“ sagði Geir Sigurpáll.