
Reglulega fara starfsmenn Bergs – Hugins ehf. í svonefnda karaleiðangra. Tilgangur leiðangranna er að leita uppi fiskikör frá Síldarvinnslunni sem hafa verið tekin traustataki og nýtt til annarra verkefna en þeim er ætlað. Fyrir nokkru héldu þeir Arnar Richardsson og Rúnar Þór Birgisson í slíkan leiðangur og fóru þeir um Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanes. Arnar var spurður um árangur leiðangursins. ”Í slíkum leitarferðum höfum við ávallt rekist á Síldarvinnslukör sem eru á stöðum þar sem þau eiga ekki að vera og notuð í öðrum tilgangi en þeim er ætlaður. Það virðist vera algengt að ef mönnum vanti kar þá sé næsta kar tekið traustataki og það nýtt með ýmsum hætti. Í þessum leiðangri fundum við 34 kör frá Síldarvinnslunni sem höfðu verið tekin í óleyfi en tekið skal fram að á körunum stendur að þau skuli einungis notið undir fisk og fiskafurðir og þau séu eign Síldarvinnslunnar og skuli komið í hendur fyrirtækisins. Í þessum leiðangri fundum við kör sem voru nýtt með ýmsum hætti. Eitt kar fannst úti á túni við fjárrétt og þá fundust kör sem notuð voru til að geyma í veiðarfæri og alls konar dót og drasl. Alvarlegast var þó að ýmsar fiskvinnslur höfðu tekið kör traustataki og notað þau í sinni starfsemi. Sem dæmi má nefna að fyrirtæki höfðu notað kör undir salt og saltfisk eða undir fisk þegar hann var fluttur á milli staða.

Vissulega geta átt sér stað nokkuð líflegar umræður þegar við komum á stað og stöndum menn að því að nota Síldarvinnslukör í starfsemi sinni en yfirleitt eru málin þó leyst í bróðerni. Vert er að geta þess að meðferð á körunum hefur batnað verulega á seinni árum en áður fyrr var meira um grófa misnotkun og afar slæma meðferð.
Við viljum hvetja alla til að ganga vel um Síldarvinnsluskörin og koma þeim til Eimskips, Flytjanda eða Fiskmarkaðar Íslands svo að þau komist á ný í hendur rétts eiganda.
Að lokum er rétt að geta þess að nú er til skoðunar hvort einhverjir aðilar hafi sent Síldarvinnslukör til útlanda án okkar vitneskju,” sagði Arnar.
