Fjölnir GK siglir inn Norðfjörð að loknum góðum róðri. Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson

Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK hefur að undanförnu róið frá Neskaupstað og fiskað vel. Heimasíðan ræddi við Kristinn Arnberg Kristinsson skipstjóra og spurði hann nánar út í veiðina. Kristinn sagði að eftir sumarstopp hefði verið farið í einn róður frá heimahöfn í Grindavík en síðan haldið austur. “Við komum austur þann 8. ágúst og lönduðum þar fyrst þremur dögum síðar. “Við höfum sótt tiltölulega langt út og verið mest að veiðum á Hornfláka og norður á Héraðsflóadýpi. Það hafa fengist frá 9 til 14 tonn í róðri og fiskurinn er virkilega fallegur. Þá hefur verið bongóblíða allan tímann að undanskildum einum degi. Hver róður tekur frá tuttugu og einum til tuttugu og fimm tíma. Mestur tíminn fer í stím en það tekur um tvo tíma að leggja línuna og átta og hálfan tíma að draga. Júlíus Magnús Sigurðsson tók við skipstjórninni af mér og hann landaði fyrst 19. ágúst. Fjölnir hefur verið á sjó alla daga síðan og það er sama góða fiskiríið. Þeir hafa komið með yfir 10 tonn í öllum róðrum frá því ég fór í land. Þetta er virkilega gott,” sagði Kristinn Arnberg.