
Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK er kominn austur til Neskaupstaðar og hefur róið þaðan síðustu dagana. Fjölnir er 30 tonn að stærð og tilheyrir Vísisflotanum í Grindavík. Síðustu árin hefur Fjölnir gjarnan róið frá Neskaupstað um tíma á vorin og haustin. Heimasíðan sló á þráðinn til Kristins Arnbergs Kristinssonar skipstjóra og spurði frétta. “Af okkur er allt gott að frétta. Við lönduðum í fyrsta sinn í Neskaupstað á laugardaginn en lönduðum reyndar á Djúpavogi á leiðinni hingað austur. Við erum í fimmta túrnum hér eystra núna og það er búin að vera ljómandi góð veiði. Þá hefur verið bongóblíða alveg frá því við komum. Fiskurinn sem fæst hér eystra er virkilega flottur. Eftir að við komum austur til Neskaupstaðar höfum við róið tvisvar á Gerpisgrunn, einu sinni í Seyðisfjarðardýpið og tvisvar í Héraðsflóann. Við erum einmitt í Héraðsflóanum í dag og það eru um það bil 25 mílur að bryggju í Neskaupstað. Aflinn hefur verið frá 9 tonnum og upp í 16 tonn hér eystra og við getum ekki kvartað yfir aflabrögðunum. Þetta hefur í reynd bara gengið eins og í sögu,” sagði Kristinn Arnberg.