Fjölnir GK rær nú frá heimahöfn í Grindavík. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Hér á heimasíðunni hefur verið greint frá því að krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK hafi verið gerður út frá Skagaströnd frá ágústmánuði og fram til mánaðamóta október og nóvember. Báturinn fiskaði hátt í 400 tonn fyrir norðan og var ýsa um helmingur aflans en sérstök áhersla var lögð á ýsuveiði. Eftir að þeir Fjölnismenn kvöddu Skagaströnd hafa þeir róið á sín heimamið við Reykjanesið og aflað ágætlega. Aflinn hefur mest verið ýsa, þorskur og langa. Mest hafa fengist 6 – 7 tonn í róðri. Það sem af er nóvember hefur báturinn veitt um 100 tonn þrátt fyrir að hann þyrfti að fara í slipp og verið frá veiðum um tíma.

Á Fjölni eru tvær áhafnir og eru þeir Kristinn Arnberg Kristinsson og Júlíus Magnús Sigurðsson skipstjórar. Láta þeir vel af veiðunum fyrir norðan og eru einnig ánægðir með hvernig veiðarnar fyrir sunnan fara af stað. Segja þeir að nánast engar frátafir hafi verið vegna veðurs bæði fyrir norðan og eins eftir að suður var komið. Ávallt hafi verið rjátlveiði og um þessar mundir fáist góður þorskur sem henti vel til vinnslu en um sé að ræða 6-8 kg. fisk. Fram kom í samtölum við skipstjórana að Fjölnir væri búinn að koma með meira en helmingi meiri ýsu að landi en á sama tíma í fyrra og það væri árangur sem menn væru sáttir við. Einnig kom fram hjá þeim félögum að Fjölnir væri búinn að fiska 1.600 tonn á árinu og það væri býsna gott.