
Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK hefur róið frá Neskaupstað frá því snemma í ágústmánuði og aflað vel. Heimasíðan ræddi við Júlíus Magnús Sigurðsson skipstjóra og spurði hann nánar út í veiðiskapinn. “Veiðin hefur gengið afskaplega vel. Það hefur verið auðvelt að fá þorsk en ýsan hefur verið erfiðari, örugglega vegna þess að sjórinn er býsna heitur. Þá hefur veður verið mjög hagstætt og það er fyrst um þessar mundir sem einhverjar brælur eru að stríða okkur. Þorskurinn sem við erum að fá er stór og fallegur og hentar vel fyrir vinnsluna. Mest hefur verið róið einar 35 – 40 mílur út og veitt á Hornfláka, Gerpisgrunni, í Norðfjarðardýpinu og reyndar einnig norðar. Beitan sem við notum er fersk síld sem við fáum beint úr síldarskipunum Berki og Beiti. Þetta er besta beita sem hægt er að hugsa sér. Um er að ræða spikfeita norsk – íslenska síld sem þorskurinn er virkilega spenntur fyrir. Það þýðir lítið að beita íslenskri sumargotssíld enda er hún ekki feit á þessum árstíma. Til þess að þorskurinn sé virkilega spenntur fyrir síldinni þarf hún helst að vera um 20% feit. Auðvitað er þorskurinn, sem við erum að veiða, að eltast við síldina sem nú heldur sig út af Austfjörðum. Frá því við komum austur hefur verið komið með á milli 10 og 20 tonn að landi og nú á föstudaginn var um metróður að ræða. Þá komum við með 21 tonn og það er mesti afli í löndun sem Fjölnir hefur komið með. Það er vissulega gaman þegar veiðarnar ganga svona og það er ekki hægt að vera annað en sæll með fiskiríið. Mér þykir ekki ósennilegt að við höldum okkur hér eystra út nóvember og þá verðum við að veiðum á svipuðum slóðum og síldveiðiskipin halda sig. Það eina sem vantar er betri ýsuveiði en við höfum trú á því að ýsan birtist þegar kólnar,” sagði Júlíus Magnús.
