Fjölnir GK að veiðum. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Krókaaflamarksbáturinn Fjölnir GK, sem er í eigu Vísis í Grindavík, hefur verið að gera það ágætt að undanförnu, en hann hefur að mestu róið frá Neskaupstað síðustu tvo mánuðina. Heimasíðan sló á þráðinn til annars skipstjóranna á Fjölni, Kristins Arnbergs Kristinssonar, og spurði hann um gang veiðanna. “Á heildina litið gengu veiðarnar fyrir austan býsna vel en aflinn var þó misjafn í róðrunum og stundum voru brælur að stríða okkur. Við þurftum að fara býsna langt út frá Neskaupstað til að ná góðum árangri eða 30 – 40 mílur. Þarna fékkst gullfallegur fiskur og ekki undan neinu að kvarta. Við fengum um 480 tonn í maí og júní og af því fengust um 380 tonn fyrir austan og þar af rúmlega 200 tonn í júnímánuði. Það er ekki hægt að kvarta yfir svona veiði,” sagði Kristinn Arnberg.

Nú er komið að sumarstoppi hjá Fjölni og mun báturinn fara í slipp í Njarðvík í dag.