
Ljósm. Guðmundur H. Sigfússon
Síldarvinnslan hf. er nú að stækka verulega skrifstofuhúsnæði sitt að Hafnarbraut 6 í Neskaupstað. Skrifstofur fyrirtækisins hafa verið á efri hæð hússins frá árinu 1990 en áður höfðu þær verið til húsa í Steininum eða að Egilsbraut 8 frá árinu 1968. Á neðri hæð hússins að Hafnarbraut 6 eru skrifstofur Samvinnufélags útgerðarmanna og Súnbúðin. Stækkun hússins felst í því að byggð er hæð ofan á húsið og eins er byggt lyftuhús og tæknirými vestan við það.
Framkvæmdir við stækkunina hófust í maímánuði og í lok þess mánaðar flutti starfsfólk Síldarvinnslunnar úr húsinu og var því fundinn staður í fiskiðjuveri fyrirtækisins og í skrifstofuklasanum Múlanum á meðan á framkvæmdum stendur.
Aðalverktaki við framkvæmdirnar er byggingafyrirtækið Nestak ehf. og aðrir verktakar eru Fjarðalagnir ehf., G. Skúlason ehf., Launafl ehf., VÁP ehf., Haki ehf., TryggerX ehf., Laugardalshólar ehf. og Litasýn ehf. Guðmundur Helgi Sigfússon tæknifræðingur er umsjónarmaður framkvæmdanna og Björgvin Már Eyþórsson hjá Nestaki er byggingarstjóri.
Hæðin sem reist verður ofan á húsið er 385 fermetrar og er hún gerð úr krosslímdum timbureiningum sem framleiddar eru í Austurríki á vegum Element ehf í Reykjavík. Verklok eru áætluð í maímánuði næstkomandi.
Með þessari frétt fylgja myndir sem sýna gang byggingaframkvæmdanna og síðasta myndin sýnir hvernig húsið mun líta út að framkvæmdum loknum.



