Loðnan á leið til vinnslu. Ljósm. Smári Geirsson

Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað tók á móti fyrstu loðnunni til vinnslu á yfirstandandi vertíð þann 20. janúar sl. Síðan hefur mikið verið framleitt og hefur vinnslan verið samfelld frá því í byrjun febrúarmánaðar. Nú er búið að frysta rúmlega 10.000 tonn í fiskiðjuverinu, þar af 3.600 tonn á Asíumarkað. Um það bil 2.100 tonn af þessum 3.600 eru Japansloðna en slík loðna er hrygna með yfir 15% hrognafyllingu. Frysting á Japansloðnu stendur tiltölulega stutt yfir en hún hófst þann 12. febrúar.

Tíðindamaður heimasíðunnar settist niður með þeim Geir Sigurpáli Hlöðverssyni rekstrarstjóra fiskiðjuversins og Karli Rúnari Róbertssyni gæðastjóra og fékk hjá þeim ýmsar upplýsingar um framleiðslustarfsemina.

Fram kom hjá þeim félögum að öll áhersla sé lögð á manneldisvinnslu á yfirstandandi loðnuvertíð en sú loðna sem flokkast frá við þá vinnslu fer til framleiðslu á mjöli og lýsi í fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins.

Um þessar mundir er verið að frysta Japansloðnu og er hrognafyllingin á milli 18 og 19%. Fulltrúar japanskra kaupenda komu í byrjun febrúarmánaðar og fylgjast vel með framleiðslunni. Frystingu á Japansloðnu fer að ljúka en síðan líða nokkrir dagar þar til vinnsla á hrognum getur hafist. Forsendur hrognavinnslunnar eru þær að hrognafyllingin hafi náð að minnsta kosti 20% og hrygnan sé farin að losa pokann eins og sagt er.

Pokarvélar í fiskiðjuverinu. Ljósm. Smári Geirsson

Að sögn þeirra Geirs Sigurpáls og Karls Rúnars hefur vinnslan gengið einstaklega vel það sem af er vertíðinni enda segja þeir að í fiskiðjuverinu starfi frábært fólk sem leysir öll verkefni fljótt og samviskusamlega af hendi. Þá segja þeir einnig að framhald vertíðarinnar líti vel út í alla staði.

Til gamans má geta þess að loðna var í fyrsta sinn fryst til útflutnings hjá Síldarvinnslunni árið 1971. Þá voru fryst 104 tonn. Nú tekur það liðlega þrjár klukkustundir að frysta 104 tonn af loðnu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar svo breytingin er býsna mikil.