Jólasíldarbitar. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Löng hefð er fyrir framleiðslu á jólasíld hjá Síldarvinnslunni og hófst verkun hennar í gær í fiskiðjuveri fyrirtækisins í Neskaupstað. Miklar kröfur eru gerðar til síldarinnar sem notuð er. Hún þarf að vera norsk – íslensk nýveidd gæðasíld sem veiðiskip flytur vel kælda til vinnslu. Þegar hún berst að landi er hún flökuð strax og skorin í hæfilega bita. Síðan þurfa bitarnir að liggja í saltpækli í körum í ákveðinn tíma og að því loknu í edikslegi. Þá eru bitarnir hafðir í edikslegi í tunnum og þar liggja þeir þar til þeim er pakkað í fötur með sykurlegi ásamt grænmeti og ýmsum kryddjurtum sem eiga sinn þátt í að skapa bragðið sem er eftirsótt og mörgum þykir unaðslegt. Nánari upplýsingar um framleiðsluferilinn eru ekki veittar enda er litið á uppskriftina að þessu góðgæti sem framleiðsluleyndarmál. Það eru verkstjórarnir Oddur Einarsson og Eyðun Simonsen sem stýra framleiðslunni nú en þeir byggja á áralangri reynslu sem fyrrverandi starfsmenn Síldarvinnslunnar hafa mótað.

Það ríkir ávallt góð stemmning í fiskiðjuverinu þegar framleiðsla á jólasíldinni hefst. Í gær var síldin flökuð, skorin í bita og sett í kör með edikslegi. Síldin leit afar vel út og víst er að hún verður ekki síðra hnossgæti en fólk hefur notið áður um jólin.

Jólasíldin er framleidd fyrir starfsfólk Síldarvinnslunnar og þá sem tengjast fyrirtækinu. Eins fá Hosurnar, líknarfélag starfsmanna Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað, síld í ákveðnu magni. Er sú síld seld til styrktar sjúkrahúsinu.

Oddur Einarsson yfirverkstjóri er ánægður með síldina.
Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Katrín Unnur Elmarsdóttir að störfum við framleiðslu á jólasíld. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson