
Ísfisktogarinn Bergey VE landaði í Grindavík á mánudag og er að landa í Eyjum í dag. Systurskipið Vestmannaey VE landaði í Eyjum í gær. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og fékk fréttir.
Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, sagði að lítill kraftur væri í veiðunum um þessar mundir, þetta væri óttalegt rag. “Við lönduðum fullfermi í Grindavík á mánudag og aflinn var mest þorskur og ýsa. Við hófum túrinn í Reynisdýpinu, síðan var haldið á Pétursey og Vík, þaðan var brunað á Ingólfshöfðann og endað í ýsu í Meðallandsbugtinni. Seinni túrinn var stuttur og við erum að landa 35 tonnum í Eyjum núna í dag. Sá afli fékkst á Pétursey og Vík,” sagði Jón.
Egill Guðni Guðnason, skipstjóri á Vestmannaey, sagði að veitt hefði verið í einmunablíðu. “Við lönduðum fullfermi í gær og aflinn var jöfn blanda af þorski, ýsu og ufsa. Aflinn fékkst á Síðugrunni og Ingólfshöfða og veiðin var alveg þokkaleg en engu að síður var þetta svolítið blettótt,” sagði Egill Guðni.