Birtingur NK með gott hol á Látragrunni.
Ljósm. Adam Helgi Jóhannesson

Ísfisktogarinn Birtingur NK kom til Hafnarfjarðar á laugardaginn að loknum fyrsta alvörutúrnum eftir að Síldarvinnslan festi kaup á skipinu. Áður hafði Birtingur farið í stuttan prufutúr fyrir páskana. Heimasíðan sló á þráðinn til Hjálmars Ólafs Bjarnasonar skipstjóra og spurði frétta. “Þessi túr gekk afar vel og það fiskaðist ágætlega. Við létum úr höfn í Hafnarfirði og héldum norður á Látragrunn þar sem veitt var í þokkalegasta veðri. Menn eru að læra á skipið og í ljós kom að þörf er á að gera smávægilegar lagfæringar og það verður gert núna. Við fylltum öll kör sem voru um borð og komum að landi með um 60 tonn af góðum fiski. Áhöfnin er afar ánægð með skipið. Það er í alla staði gott að vinna á því og sjóhæfni þess virðist vera hin besta,” sagði Hjálmar Ólafur.

Birtingur hélt á ný til veiða í gærkvöldi og var stefnan tekin á Melsekk þar sem reyna á við gullkarfa. Gert er ráð fyrir að skipið landi á ný á miðvikudag.

Landað úr Birtingi NK í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósm. Hjálmar Ólafur Bjarnason