Ljósm. Hákon Ernuson
Grænlenska skipið Polar Amaroq kom til Neskaupstaðar sl. nótt með 2.000 tonn af kolmunna sem fékkst í færeyskri lögsögu. Er þetta fyrsti kolmunnafarmurinn sem landað er á Íslandi á þessu nýbyrjaða ári. Heimasíðan ræddi við Geir Zoёga skipstjóra og spurði hvernig veiðin hefði gengið. “Það gekk vel að veiða og það var mikið af fiski að sjá á miðunum en veitt var beint suður af Færeyjum. Aflinn fékkst í fjórum stuttum holum og fiskurinn er virkilega fínn. Við vorum að veiðum í góðu veðri þar til undir lokin en þá brældi. Siglingin til Neskaupstaðar var þægileg þar til komið var upp að landinu en þá versnaði veðrið og veltingurinn var virkilega hressilegur. Ég geri ráð fyrir að löndun ljúki í kvöld en aflinn fer til mjöl- og lýsisframleiðslu,” sagði Geir.
Grænlenska fyrirtækið Polar Pelagic gerir út tvö uppsjávarveiðiskip; Polar Amaroq og Polar Ammassak. Polar Ammassak mun taka þátt í loðnuleit við Ísland og mun væntanlega halda til leitar um komandi helgi eða í næstu viku.