
Margrét EA kom í morgun með fyrsta makrílfarminn sem berst til Neskaupstaðar á þessari vertíð. Aflinn sem skipið ber að landi að þessu sinni er tæplega 700 tonn og var allt tilbúið í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar til að taka á móti honum til vinnslu.
Síldarvinnsluskipin Beitir NK og Börkur NK héldu til makrílveiða sl. mánudagskvöld. Byrjuðu þau á að leita að makríl innan íslenskrar lögsögu suðaustur af landinu með litlum árangri og var þá stefnan tekin út í Síldarsmuguna svonefndu þar sem makrílveiði hefur verið upp á síðkastið.
Margrét EA er í veiðisamstarfi með Vilhelm Þorsteinssyni EA, Berki NK og Beiti NK. Slíkt veiðisamstarf er ekki nýtt af nálinni en íslensk makrílveiðiskip hófu slíkt samstarf fyrst sumarið 2020. Það sumar gekk makríllinn ekki upp á landgrunnið í ríkum mæli eins og hann hafði gert árin á undan en hélt sig þess í stað í Smugunni þannig að langt var að sækja hann. Við þessa breytingu hófu makrílskipin gjarnan veiðisamstarf. Samstarfið byggist á því að hverju sinni var afla samstarfsskipanna dælt um borð í eitt þeirra og flutti það síðan aflann til vinnslu í landi. Skiptust skipin á að taka aflann um borð og sigla með hann hina löngu leið til lands. Þetta veiðisamstarf reyndist strax vel og ekkert fór á milli mála að það var í alla staði hagkvæmt og skynsamlegt. Öllu máli skiptir að aflinn komi sem ferskastur til vinnslu og veiðisamstarfið stuðlar einmitt að því.
Meðalþyngd makrílsis sem Margrét kom með í morgun er 430 grömm og er aflinn vel kældur í lestum skipsins. Ætti þessi makríll að henta vel til vinnslu og víst er að starfsfólk fiskiðjuversins er ánægt með að hefja hana af krafti. Geir Sigurpáll Hlöðversson, rekstrarstjóri fiskiðjuversins, lofar fiskinn úr Margréti og segir hann vera svakalega fallegan.
Í morgun bárust þær fréttir af miðunum að veiðin hefði gengið vel frá því að Margrét hélt til lands. Beitir mun vera á landleið með rúmlega 830 tonn sem fengust í fjórum holum og í morgun var Börkur í góðri veiði.