Loðnan sem berst að landi reynist vera gæðaloðna, stór og fallleg og hrognafylling um 19%. Ljósm. Geir Sigurpáll Hlöðversson

Barði NK kom til Neskaupstaðar snemma í morgun með rúmlega 300 tonn af loðnu. Vinnsla á loðnunni hófst þegar í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Heimasíðan ræddi við Þorkel Pétursson skipstjóra og spurði fyrst hvar hefði verið veitt. “Við fengum þessa loðnu fyrir norðan land, nánar tiltekið í Reykjarfjarðarálnum út af Ströndum. Við köstuðum líka við Snæfellsnes en þar var loðnan hryngd og við fengum nánast einungis kall þar. Það var kastað þrisvar í Reykjafjarðarálnum og þar fékkst stór og falleg loðna og í prufum sem teknar voru reyndist vera um 60% hrygna. Hrognafyllingin var um 19%. Þetta er því örugglega fínasta hráefni fyrir vinnsluna,” sagði Þorkell.

Grænlenska skipið Polar Amaroq er væntanlegt til Neskaupstaðar í kvöld með 485 tonn af loðnu. Geir Zoёga skipstjóri segir að loðnan hafi fengist í Reykjafjarðarálnum á sömu slóðum og Barði var að veiðum.” Þetta er falleg Japansloðna sem við erum með, 60% hrygna. Það var virkilega skemmtilegt að fá þessa gæðaloðnu þarna út af Ströndunum. Nú erum við búnir með okkar hlutdeild í grænlenska loðnukvótanum. Þetta var stysta loðnuvertíð sem maður hefur upplifað,” sagði Geir.

Karl Rúnar Róbertsson, gæðastjóri í fiskiðjuverinu, segir að loðnan sem nú er verið að vinna sé gæðahráefni. “Þetta er alger úrvalsloðna, stór og falleg. Hrognafyllingin er 19 – 20% og það er hátt hlufall hrygnu í aflanum eða um 60%. Það er verið að frysta hrygnuna á Japan og hænginn á Austur-Evrópu og það gengur býsna vel,” sagði Karl Rúnar.