
Þegar heim var komið að aflokinni glæsilegri árshátíðarferð til Póllands héldu síldveiðiskipin Beitir NK og Börkur NK til veiða vestur af landinu. Beitir var fyrstur á miðin, enda hélt hann til veiða frá Hafnarfirði en Börkur lét úr höfn í Neskaupstað. Að sögn Ólafs Gunnars Guðnasonar skipstjóra á Beiti gekk mjög brösuglega að finna síldina. “Við byrjuðum á að leita í Jökuldýpinu og síðan í Kolluálnum en lítið fannst. Það var fyrst þegar við vorum að leggja af stað í land að síld fannst í Kolluálnum og þá hófst ágæt veiði. Auk þess að finna lítið framan af var síldin sem við fengum smærri en hún hefur yfirleitt verið en það breyttist undir lokin þegar veiði hófst fyrir alvöru. Við tókum sex hol í veiðiferðinni og framan af gáfu þau lítið og jafnvel nánast ekki neitt. Eftir að síldin fannst tókum við eitt 200 tonna hol en eftir það urðum við að halda í land með aflann til vinnslu. Aflinn var um 730 tonn og komum við með hann til Neskaupstaðar á laugardagskvöld. Vinnsla hófst þá þegar,” sagði Ólafur Gunnar.
Þegar vinnslu lauk úr Beiti var Börkur kominn til hafnar í Neskaupstað með 1.670 tonn og hófst þegar löndun úr honum. Hjörvar Hjálmarsson skipstjóri var ánægður með veiðiferðina. “Þegar við komum á miðin var lítil veiði en síðan fannst síld í Kolluálnum og veiðin glæddist mikið. Þetta er einmitt á þeim slóðum sem síldin var að miklu leyti veidd í fyrra og þarna er um góða síld að ræða, 290 – 320 gramma meðalvigt. Við tókum átta hol í túrnum og í þeim fékkst frá 24 tonnum og upp í rúm 400 tonn. Það voru fyrstu holin sem voru léleg en síðan gekk vel. Þetta lítur allt saman vel út núna og menn eru bjartsýnir, sagði Hjörvar.
Beitir hélt á ný til veiða strax að löndun lokinni en gera má ráð fyrir að það taki rúmlega tvo sólarhringa að vinna síldina úr Berki. Þriðja uppsjávarveiðiskip Síldarvinnslunnar, Barði NK, hélt til veiða á miðvikudagskvöld og var kominn með góðan afla í morgun.