Veiðiferðin gekk vel hjá Barðamönnum. Ljósm. Helgi Freyr Ólason

Barði NK kom til hafnar í Neskaupstað í gær með 1.240 tonn af íslenskri sumargotssíld sem fékkst vestur af landinu. Heimasíðan ræddi við Þorkel Pétursson skipstjóra og sagði hann að veiðiferðin hefði í reynd gengið eins og í sögu. “Við tókum því rólega í túrnum enda lá fyrir að gott helgarfrí yrði í fiskiðjuverinu í Neskaupstað. Aflinn fékkst í fimm holum og var togað í hverju holi frá einum og upp í sjö tíma. Aflinn í holi var frá 150 og upp í 360 tonn. Við vorum að veiðum í Kolluálnum, nánar tiltekið á Wilson sem er á landgrunnskantinum. Þaðan var dregið norður á Látragrunnskantinn. Veður var gott ef undan er skilinn einn dagur en þá var kaldaskítur. Löndun hófst klukkan sjö í gærkvöldi og gera má ráð fyrir að löndunin taki um tvo sólarhringa. Síldin er fín og hún er á bilinu 280 -300 grömm. Það eru semsagt allir glaðir hér um borð. Nú eru bæði Börkur og Beitir á miðunum og við bíðum rólegir þangað til ljóst verður um framhaldið,” sagði Þorkell.

Barði NK siglir inn Norðfjarðarflóann í gær. Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson