
Vestmannaeyjatogararnir Vestmannaey VE og Bergey VE eru að gera það gott. Bergey landaði tæplega 50 tonnum í Eyjum á laugardag og er síðan að landa þar aftur fullfermi í dag. Vestmannaey landaði fullfermi í Þorlákshöfn á mánudagskvöld. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og létu þeir báðir vel af sér.
Jón Valgeirsson skipstjóri á Bergey var sáttur við veiðina. ”Við byrjuðum á að fara stuttan túr og þá var veitt á Pétursey og Vík. Þar fékkst þorskur og ufsi. Síðan varð tregt þar og þá var farið inn til Eyja og landað. Að löndun lokinni var haldið í Meðallandsbugtina þar sem fékkst ýsa. Við færðum okkur síðan á Ingólfshöfðann þar sem fékkst þorskur. Þá var komið að því að reyna fyrir sér í Lónsbugtinni þar sem fékkst góð blanda af ýsu og þorski. Við lukum síðan túrnum á Höfðanum en þá var komin skítabræla. Það er fullfermi landað úr skipinu í dag,” sagði Jón.
Skipstjóri á Vestmannaey í veiðiferðinni var Valtýr Bjarnason. Valtýr er annar stýrimaður á skipinu en þetta er annar túrinn sem hann fer sem skipstjóri. Fyrsta túrinn í skipstjórastólnum fór hann fyrir rúmlega ári. Valtýr segir að auðvelt sé að taka við skipstjórahlutverkinu enda sé um frábæra áhöfn að ræða og alltaf hægt að fá góð ráð hjá Birgi Þór Sverrissyni skipstjóra og Agli Guðna Egilssyni fyrsta stýrimanni. ”Við fengum gott veiðiveður í túrnum og hann gekk í reyndinni eins og í sögu. Uppistaða aflans var þorskur og ýsa en síðan fékkst einnig dálítið af ufsa og steinbít. Við hófum veiðar á Pétursey og Vík en síðan var veitt í eina nótt á Ingólfshöfða. Þá var haldið í Lónsbugtina og þar veiddist vel. Við enduðum loks aftur á Höfðanum í bakaleiðinni. Í Lónsbugtinni vorum við stutt frá loðnuskipunum og fylgdum síðan í kjölfar þeirra þegar þau færðu sig vestur með suðurströndinni. Þegar við héldum í land voru loðnuskipin komin vestur fyrir Höfðann. Í reyndinni gat þessi túr ekki gengið mikið betur,” sagði Valtýr.
Vestmannaey mun halda á ný til veiða í dag og Bergey á morgun.