Tæknidagur fjölskyldunnar var fjölsóttur og fólk var duglegt að heimsækja kynningarbás Síldarvinnslunnar og smakka á kræsingum úr hafinu.
Ljósm. Hafþór Eiríksson

Verkmenntaskóli Austurlands í Neskaupstað hélt Tæknidag fjölskyldunnar í ellefta sinn sl. laugardag. Dagurinn tókst vel í alla staði og var mjög fjölsóttur. Mörg fyrirtæki og félagasamtök kynntu starfsemi sína á deginum auk þess sem Verkmenntaskólinn kynnti sína námsaðstöðu og námsframboð. Þá var einnig boðið upp á fróðlega fyrirlestra. Fullyrða má að hver einasti gestur sem heimsótti Verkmenntaskólann þennan dag hafi fundið eitthvað sem honum þótti bæði fróðlegt og skemmtilegt að kynnast.

Síldarvinnslan tók að sjálfsögðu þátt í Tæknideginum og kynnti þar starfsemi sína og bauð upp á fjölbreyttar og hollar kræsingar úr hafinu. Gátu gestir meðal annars bragðað á snittum með hinni vinsælu jólasíld, reyktri síld, reyktum makríl og reyktum þorskhnakka. Þá var boðið upp á snittur með saltfiski og pönnukökur með unnum fiskhrognum. Loks má nefna að gestir gátu fengið að bragða á síldarlýsi frá Síldarvinnslunni sem Lýsi hf hefur hreinsað og unnið til manneldis. Allan daginn var mikið fjölmenni í kynningarbás Síldarvinnslunnar og þótti gestum augljóslega forvitnilegt að kynnast hinum fjölbreyttu afurðum sem boðið var upp á.

Á Tæknidegi fjölskyldunnar var boðið upp á síldarlýsi frá Síldarvinnslunni sem Lýsi hf hefur hreinsað og útbúið til manneldis. Svo sannarlega hollt og gott. Ljósm. Hafþór Eiríksson

Framtak Verkmenntaskóla Austurlands er svo sannarlega lofsvert og hefur Tæknidagur fjölskyldunnar unnið sér fastan sess í austfirsku samfélagi. Á Tæknideginum er unnt að verða sér úti um upplýsingar um þá fjölþættu starfsemi sem þrífst í landshlutanum og eins gefst gestum kostur á að kynnast því mikilvæga hlutverki sem Verkmenntaskóli Austurlands gegnir. Að þessu sinni var þess sérstaklega minnst að á þessu ári eru 40 ár liðin frá stofnun Verkmenntaskóla Austurlands.