Hákon ÞH siglir inn Norðfjörð með síðasta loðnufarm vertíðarinnar.
Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson

Loðnuvertíð er lokið og má með sanni segja að hún hafi verið góð og gleðileg. Veiðar gengu vel og veður á miðunum yfirleitt hagstætt. Þá gekk vinnsla einnig eins og best verður á kosið. Það var grænlenska skipið Polar Amaroq sem kom með fyrsta farm vertíðarinnar til Síldarvinnslunnar í Neskaupstað þann 20. janúar og það var Hákon ÞH sem kom þangað með lokafarminn þann 16. mars. Alls bárust til Neskaupstaðar 41.754 tonn á vertíðinni.

Grétar Örn Sigfinnsson, rekstrarstjóri útgerðar Síldarvinnslunnar, segir að loðnuvertíðin hafi hreint út sagt gengið eins og í sögu. ”Þetta hefði varla getað gengið betur. Síldarvinnslan var með þrjú skip að veiðum og síðan er fyrirtækið tengt útgerð grænlensku skipanna Polar Amaroq og Polar Ammassak. Hjá öllum þessum skipum gekk vertíðin afar vel. Það var mikið að sjá af loðnu og allt með hagstæðasta móti. Bátasjómenn tala um að enn sé loðna á ferðinni fyrir austan land og við blasti að vestanganga var tiltölulega öflug. Menn eru mjög bjartsýnir varðandi loðnuvertíð næsta árs og vonandi er loðnustofninn að ná sér virkilega á strik en það mun hafa jákvæð áhrif víða í samfélaginu. Næst á dagskrá hjá okkar uppsjávarveiðiskipum eru kolmunnaveiðar og auðvitað eru þær líka spennandi þáttur,” sagði Grétar.

Við lok loðnuvertíðarinnar. Lengst til vinstri er verið að landa úr Polar Ammassak og Hákon ÞH bíður löndunar. Síldarvinnsluskipin liggja bundin og hafa lokið veiðum. Ljósm. Guðlaugur Björn Birgisson

Síldarvinnsluskipin, sem lögðu stund á loðnuveiðar á vertíðinni, voru Barði NK, Beitir NK og Börkur NK. Luku þau veiðum um 10. mars en þá var kvóti þeirra uppurinn. Afli Barða á vertíðinni var 7.271 tonn, afli Beitis 10.727 tonn og Barkar 11.055 tonn.

Öll loðna, sem kom á land í Neskaupstað, fór til manneldisvinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar. Til mjöl- og lýsisvinnslu í fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins fór það sem flokkaðist frá við manneldisvinnsluna og einnig hið svonefnda hrat frá hrognavinnslunni. Að sögn Geirs Sigurpáls Hlöðverssonar rekstrarstjóra fiskiðjuversins gekk vinnslan afar vel og segir hann starfsfólkið svo sannarlega eiga hrós skilið. ” Það var unnið á vöktum við framleiðsluna og má alveg segja að hún hafi gengið eins og best verður á kosið. Fryst voru 21.884 tonn af loðnu og 2.933 af hrognum. Vertíðin gat í reyndinni ekki gengið mikið betur svo menn eru afskaplega sáttir hér í fiskiðjuverinu,” sagði Geir Sigurpáll.

Japanskir fulltrúar kaupenda skoða loðnuhrogn af mikilli nákvæmni. Ljósm. Smári Geirsson

Fulltrúar frá japönskum kaupendum fylgdust náið með starfseminni í fiskiðjuverinu alla vertíðina og voru mjög ánægðir með gang mála. Á meðal Japananna var Kusayanagi, sem venjulega er kallaður Kusa, en hann hefur komið á loðnuvertíðir á Íslandi í yfir 30 ár og gjörþekkir allar aðstæður. Japanirnir fylgdust sérstaklega með frystingu á hrygnu eða svonefndri Japansloðnu og síðan framleiðslu á loðnuhrognum.

Á loðnuvertíðinni voru rúmlega 21,600 tonn unnin í fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar. Tæplega 4.700 tonn komu frá fiskiðjuverinu en það var sú loðna sem flokkaðist frá við frystinguna. Síðan komu til verksmiðjunnar 16.900 tonn af hrati sem kom frá hrognaskurðinum. Að sögn Hafþórs Eiríkssonar verksmiðjustjóra gekk mjöl- og lýsisvinnslan afar vel.

Karólína Einarsdóttir að störfum við pökkun á loðnuhrognum í fiskiðjuverinu.
Ljósm. Smári Geirsson

Stefán Einar Elmarsson, verkstjóri í frystigeymslunum í Neskaupstað, segir að nóg hafi verið að gera hjá starfsmönnum þeirra á loðnuvertíðinni. Hann segir augljóst að þörf hafi verið til staðar á erlendum mörkuðum fyrir loðnuna og því hafi mikið legið á að afgreiða frystiskip sem
komu til Neskaupstaðar en eins var loðnan flutt út í frystigámum sem skipað var út á Reyðarfirði. Stefán segir að 1.900 tonn af loðnu frá þessari vertíð hafi þegar farið með frystiskipum frá Neskaupstað og um 2.500 tonn hafi farið með gámum. ”Loðnuvertíðin hefur svo sannarlega verið annasöm hjá okkur hér í geymslunum, en í reynd hefur allt gengið vel,” sagði Stefán Einar.