Barði NK að veiðum. Ljósm. Björn Steinbekk

Barði NK kom til Neskaupstaðar í gærkvöldi með 2.100 tonn af kolmunna. Aflinn fékkst á hinu svonefnda gráa svæði syðst í færeysku lögsögunni. Heimasíðan sló á þráðinn til Þorkels Péturssonar skipstjóra og spurði hvernig veiðin hefði gengið. “Hún gekk bara vel. Við fengum aflann í einum sjö holum og var dregið í 7 – 12 tíma en í síðasta holinu var einungis dregið í 3 tíma. Það tók eina þrjá daga að fá í skipið. Veðrið var gott að undanskildum einum degi. Veiðin fer nú fram á allstóru svæði í færeysku lögsögunni og voru skipin að veiðum á einum þremur stöðum. Almennt séð eru menn mjög ánægðir með túrinn og veðrið var hreint út sagt unaðslegt þegar komið var inn í íslenska landhelgi. Blíðan var ótrúleg. Haldið verður til veiða á ný strax að löndun lokinni,” sagði Þorkell.

Hafþór Eiríksson, rekstrarstjóri fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar, sagði að kolmunninn sem Barði kom með væri hinn fallegasti fiskur og mjög gott hráefni til vinnslu, en vinnsla hófst strax og byrjað var að landa í gærkvöldi.