Beitir NK kom til Neskaupstaðar á þriðjudagskvöld með 2.800 tonn af kolmunna sem fengust í færeyskri lögsögu. Heimasíðan ræddi við Tómas Kárason skipstjóra en hann lætur vel af veiðinni en illa af veðurfarinu. “Það gekk vel að veiða þegar það var hægt. Veðrið var afar óhagstætt. Við byrjuðum túrinn á að liggja í vari í Færeyjum í tvo daga og áður en siglt var heim lágum við í tæpan sólarhring í Borðeyjarvík austan Klakksvíkur í vari. Þá stoppuðum við einu sinni á miðunum í 12 tíma og biðum af okkur versta veðurhaminn. Þetta var semsagt helvítis brælutíð en það fiskaðist hinsvegar vel þegar hægt var að veiða. Við fengum aflann í sex holum og holin gáfu frá 290 tonnum og upp í 600 tonn. Venjulega var dregið í 10 – 12 tíma. Veiðisvæðið var um 70 mílur austur af Færeyjum,” segir Tómas.
Beitir hélt til síldveiða vestur af landinu strax að löndun lokinni en að síldartúrnum loknum má gera ráð fyrir að aftur verði haldið á kolmunnamiðin. Tómas skipstjóri hélt hins vegar áleiðis til Danmerkur strax og í land var komið en hópur skipstjórnarmanna fór til Hirtshals þar sem tilraunir eru gerðar með veiðarfæri í sérstökum tilraunatanki. Danmerkurferðin er skipulögð af Hampiðjunni.