Beitir NK er að landa 3.000 tonnum af kolmunna í Neskaupstað. Ljósm. Hákon Ernuson

Áfram berst kolmunni til fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Börkur NK kom með 3.200 tonn á miðvikudaginn og Beitir NK kom með 3.000 tonn í gærmorgun. Heimasíðan spjallaði við skipstjórana og létu þeir vel af sér. Sögðu þeir að veiðarnar gengju almennt vel og fisk væri að sjá á stóru svæði sunnarlega í færeysku lögsögunni og á hinu gráa svæði. Herbert Jónsson, skipstjóri á Berki, sagði að það liti vel út með áframhaldandi veiðar. ”Það veiddist afar vel í þessum túr. Við lentum í veiðarfærabrasi eins og gengur og gerist og það tafði okkur svolítið. Þarna voru öll skip að fá góðan afla. Fiskurinn gengur norðureftir og er í ætisleit. Vonandi gengur hann inn í íslenska lögsögu í einhverjum mæli,” sagði Herbert.

Ólafur Gunnar Guðnason, skipstjóri á Beiti, tók undir með Herberti. ”Við fengum aflann í sjö holum og dregið var í sjö til ellefu tíma. Það er heilmikill fiskur þarna á ferðinni. Nú er veðrið á miðunum að batna og það munar auðvitað miklu,” sagði Ólafur Gunnar.