Síldarflök. Ljósm. Karl Rúnar Róbertsson

Yfirstandandi síldarvertíð hófst í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað þann 9. september sl. og hefur gengið vel. Heimasíðan ræddi við Karl Rúnar Róbertsson gæðastjóra í fiskiðjuverinu og fékk hjá honum ýmsar upplýsingar um vertíðina. “Hér í fiskiðjuverinu hefur verið hörkugangur í vinnslunni og hefur vinnslan verið nánast samfelld en tekin helgarfrí af og til. Síldin, sem skipin koma með að landi, er úrvalshráefni enda er hún vel kæld í lestunum. Fiskiðjuverið hefur tekið á móti 21.200 tonnum af síld það sem af er vertíðinni. Um 70% af þeirri síld eða 14.800 tonn er norsk – íslensk vorgotssíld en um 30% eða 6.400 tonn er íslensk sumargotssíld. Eftir er að veiða og vinna rúmlega 9.000 tonn af síld á vertíðinni. Til þessa hafa verið framleidd 5.400 tonn af heilfrystri síld, 4.300 tonn af samflökum eða flöpsum og 850 tonn af flökum. Mest af flökunum eða 740 tonn eru roðlaus en 110 tonn eru með roði. Bæði samflökin og flökin eru vakúmpökkuð. Nú um hádegi verður lokið við að vinna 1.100 tonna farm úr Berki NK og Beitir NK er á miðunum. Sem betur fer hafa skipin ekki þurft að fara langt eftir síldinni og á það sinn þátt í því að um góða vertíð er að ræða. Við hér í fiskiðjuverinu getum ekki verið annað en ánægð með gang vertíðarinnar og gæði framleiðslunnar,” sagði Karl Rúnar.

Framleidd hafa verið 4.300 tonn af samflökum í fiskiðjuverinu á vertíðinni. Ljósm. Karl Rúnar Róbertsson
Framleidd hafa verið 5.400 af heilfrystri síld hjá Síldarvinnslunni á vertíðinni. Ljósm. Karl Rúnar Róbertsson