
Það sem af er mánuðinum hafa línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, verið að veiðum austur af landinu. Hafa þau ýmist landað á Djúpavogi eða í heimahöfn í Grindavík. Andrés Óskarsson sér um aflastýringu hjá Vísi og segir hann að veiðin fyrir austan hafi verið góð en hins vegar hafi tíðarfarið verið hundleiðinlegt. ”Það hefur verið bölvuð brælutíð upp á síðkastið og okkur finnst veðurfarið nú í októbermánuði óvenju slæmt. Menn geta ekki verið sáttir við hörkulegar vetrarbrælur í fyrri hluta októbermánaðar. Þrátt fyrir tíðarfarið hafa línuskipin veitt ágætlega og staðreyndin er sú að það hefur ekki fallið út ein klukkustund í vinnslustöðvum Vísis í Grindavík. Vegna viðhalds hefur Páll Jónsson verið frá veiðum í eina viku en hann hélt til veiða á ný á mánudaginn. Hann mun reyna við ýsu vestur af landinu og við sjáum til hvað kemur út úr því. Sighvatur er hins vegar að landa á Djúpavogi í dag. Vonandi lagast tíðarfarið eitthvað því brælutíð eins og verið hefur að undanförnu er afar þreytandi,” sagði Andrés.
Sighvatur GK kom til Djúpavogs í morgun og er að landa þar. Heimasíðan ræddi stuttlega við Aðalstein Rúnar Friðþjófsson skipstjóra og spurði fyrst um aflabrögðin og tíðarfarið. ”Við erum að landa um 75 tonnum hér á Djúpavogi. Aflinn er mest þorskur, en síðan er þetta einnig ýsa, langa og fleiri tegundir. Við fengum aflann í fjórum lögnum. Þrisvar var lagt í Héraðsflóanum en síðan í Sláturhúsinu. Að undanförnu hefur verið leiðindaveður og í þessum túr var skítaveður. Veðrið var líkt dæmigerðu febrúarveðri og það var mikill sjór. Í sannleika sagt hefur veðrið verið ömurlegt að undanförnu en við vitum að það kemur logn á eftir hverjum stormi þannig að við erum býsna sáttir hér á Sighvati. Við gerum ráð fyrir að halda til veiða á ný fljótlega eftir að löndun lýkur og veðrið hlýtur að verða betra í komandi veiðiferð,” sagði Aðalsteinn Rúnar.