
Kolmunnaveiði í færeysku lögsögunni er lokið að sinni en lengst af aflaðist mjög vel. Til Síldarvinnslunnar í Neskaupstað bárust 34.252 tonn af kolmunna í veiðitörninni. Fyrsti farmurinn kom þann 13. apríl og sá síðasti þann 13. maí. Það var grænlenska skipið Polar Ammassak sem kom með lokafarminn, 2.200 tonn. Heimasíðan ræddi við Hafþór Eiríksson rekstrarstjóra fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnslunnar og spurði hann hvernig þessi kolmunnatörn hefði gengið. ”Hún gekk mjög vel. Hráefrnið var gott og nú var nægileg raforka til staðar þannig að ekki þurfti að nota olíu til að knýja verksmiðjuna. Það fékkst töluvert af mjöli úr kolmunnanum og um er að ræða mjög gott mjöl. Hinsvegar fæst lítið af lýsi úr fiskinum á þessum árstíma. Á meðan á framleiðslunni stóð fóru frá okkur 5.400 tonn af mjöli og einnig fóru 700 tonn af lýsi til Lýsis hf en það er nýtt til manneldisvinnslu. Líklegt er að ekki verði framleitt í verksmiðjunni á ný fyrr en seint í júlímánuði en það er nægum verkefnum að sinna fram að þeim tíma,” sagði Hafþór.