
Frystitogarinn Blængur NK kom til Neskaupstaðar í gærmorgun að aflokinni 26 daga veiðiferð. Afli skipsins var 667 tonn upp úr sjó og er verðmæti aflans um 440 milljónir króna. Aflinn var blandaður; um 180 tonn voru af gullkarfa, 170 tonn af ýsu og svipað af þorski auk um 80 tonna af ufsa. Bjarni Ólafur Hjálmarsson skipstjóri segir þokkalega hafi aflast en veður hafi verið óhagstætt. ”Vegna veðurs hröktumst við víða um og veiddum í reyndinni allt í kringum landið að Norðurlandi undanskildu. Við fengum góðan karfaafla á Melsekk, vel gekk að veiða þorsk og ýsu á Látragrunni og ufsann fengum við í Berufjarðarálnum. Staðreyndin er sú að við hröktumst úr einum stað í annan undan veðri. Þetta er einhver versti brælutúr sem ég hef upplifað í mörg ár. Ég held að menn séu mjög sáttir við niðurstöðuna þegar tekið er tillit til hve veðurfarslegar aðstæður voru erfiðar,” sagði Bjarni Ólafur.

Þegar Blængur var á landleið hafði Landhelgisgæslan samband og bauðst til þess að halda björgunaræfingu með áhöfninni þar sem björgun með þyrlu yrði æfð. Það var þegið með þökkum og fór æfingin vel fram. Var áhöfnin á Blængi þakklát fyrir æfinguna.