
Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa verið að gera það gott að undanförnu. Páll Jónsson landaði 120 tonnum á Djúpavogi sl. mánudag og Sighvatur er að landa þar 110 tonnum í dag.
Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, var ánægður með aflabrögðin. “Þetta gekk býsna vel. Við byrjuðum á Héraðsflóanum alveg út undir Hattabúðinni við Keikó. Þar tókum við tvær lagnir. Síðan færðum við okkur í Bakkaflóann og tókum rúmlega tvær lagnir þar. Þarna fékkst fínasti fiskur, sérstaklega í Bakkaflóanum. Um það bil 95% af aflanum var þorskur. Við hófum túrinn í kaldaskít en síðan var hið fínasta veður þannig að þetta gat ekki orðið mikið betra,” sagði Benedikt.
Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, var einnig sáttur við veiðina. “Við fengum aflann í þremur og hálfri lögn í Bakkaflóanum. Þarna var síld og fiskurinn liggur í henni. Það er mikil ferð á þessu, stundum sést mikið en eftir stuttan tíma lítið sem ekkert. Aflinn var langmest þorskur en svo var einnig dálítið af hlýra, karfa og keilu með. Veður í túrnum var bara gott en við fengum þó dálitla brælu um tíma,” sagði Aðalsteinn Rúnar.