Landað úr Sighvati GK í Grindavík. Ljósm. Jón Steinar Sæmundsson

Línuskip Vísis, Páll Jónsson GK og Sighvatur GK, hafa verið að fiska vel að undanförnu. Páll Jónsson landaði fullfermi eða 130 tonnum í Þorlákshöfn á mánudag og Sighvatur er að landa rúmlega 100 tonnum í Grindavík í dag. Heimasíðan ræddi við skipstjórana og létu þeir ágætlega af sér. Benedikt Jónsson, skipstjóri á Páli Jónssyni, sagði að fiskiríið hefði verið mjög gott en öðru máli hefði gegnt um veðrið. “Við fengum aflann í fjórum lögnum, einni á Kötlugrunni og þremur í Meðallandsbugt. Það fengust um 30 tonn í þremur fyrstu lögnunum og 40 í þeirri síðustu. Meirihluti aflans var þorskur en síðan var þetta langa, ýsa og fleiri tegundir. Þetta er stór og fallegur fiskur, stútfullur af hrognum. Það er alls ekki hægt að kvarta þegar svona fiskast þó svo að bræluskítur hafi hrellt okkur. Við gátum ekki landað í heimahöfn í Grindavík. Höfnin þar var lokuð enda ölduhæðin tæplega átta metrar. Af þessari ástæðu var landað í Þorlákshöfn,” sagði Benedikt.

Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Sighvati, var ánægður með túrinn en eins og fleiri var hann heldur þreyttur á veðurfarinu. ”Það var afskaplega leiðinlegt veður megnið af túrnum. Við vorum til dæmis í eina 27 tíma að komast austur á veiðislóðina en það tekur okkur venjulega 16 tíma. Aflinn fékkst í fjórum lögnum. Fyrsta lögnin var í Sláturhúsinu og fengust í henni um 10 tonn. Þá færðum við okkur í Meðallandsbugtina og tókum þrjár lagnir þar og fengust um 30 tonn í hverri þeirra. Aflinn var mest stór og fallegur þorskur en síðan var þetta helst langa, ýsa og steinbítur,” sagði Aðalsteinn Rúnar.

Páll Jónsson hélt til veiða fljótlega eftir að löndun lauk og er ráðgert að hann komi á ný til löndunar á annan í páskum. Sighvatur mun halda á ný til veiða í kvöld.